Description
Mótaðu veröldina þína
Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri. Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi.
English below:
Tengiliður framleiðslu við áreiðanleika (PMC)
Við leitum að áhugasömum einstakling í starf tengiliðs framleiðslu við áreiðanleika (PMC). Starfið felur í sér að samþætta viðhalds- og framleiðluverkefni með það að markmiði að ná fram bestu mögulegu framkvæmd verkefna, tryggja áreiðanleika búnaðar og lágmarka niðritíma. Umsækjandi þarf að búa yfir sterkum skipulags- og samskiptahæfileikum, ásamt því að vera með hugarfar stöðugra umbóta.
Ábyrgð og verkefni:
- Vera tengiliður milli framleiðslu og áreiðanleika.
- Samþykkja og samþætta verkbeiðnir frá framleiðslu við viðhaldsskipulag.
- Fylgjast með ástandi búnaðar og forgangsraða skipulögðu viðhaldi.
- Taka þátt í viðhaldsáætlunarfundum og tryggja að viðhaldsáætlunum séu fylgt.
- Stuðla að og vinna að umbótum á framleiðslusvæðinu, þar með talið rannsóknum á atvikum og rótargreiningum.
Reynsla og hæfni:
- Lágmark þriggja ára starfsreynsla hjá Fjarðaáli.
- Stóriðjuskólanám er kostur.
- Hæfni til að vinna vel í teymi.
- Sterkir samskipta- og skipulagshæfileikar.
- Frumkvæði og hæfni til ákvarðanatöku.
- Góð almenn tölvufærni og hæfni til að tileinka sér notkun tölvukerfa.
- Kunnátta á gildum, stefnu og áreiðanleikastefnu Alcoa Fjarðaáls.
Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.
Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Davíð Þór Sigurðarson framkvæmdastjóri kerskála, í tölvupósti david.sigurdarson@alcoa.com
Hægt er að sækja um starfið í Workday.
Umsóknarfrestur er til og með sunnudeginum, 8. desember.
-----------------------------------------------------------------------
Process Maintenance Coordinator (PMC)
We are looking for a dedicated Process Maintenance Coordinator to serve as the liaison between the production and reliability teams. This role involves integrating maintenance and production activities to achieve optimal execution, ensure equipment reliability, and minimize downtime. The ideal candidate will possess strong organizational and communication skills, along with a proactive approach to continuous improvement.
Responsibilities and asks:
- Act as the link between production and reliability.
- Approve and integrate work orders from production with maintenance schedules.
- Monitor equipment status and prioritize planned maintenance.
- Participate in maintenance planning meetings and ensure adherence to maintenance plans.
- Support and drive improvements in the production area, including incident investigations and root cause analyses.
Experience and Qualifications:
- Minimum of three years of experience at Fjarðaál.
- Industry School is an advantage.
- Ability to work effectively in a team.
- Strong communication and organizational skills.
- Initiative and decision-making ability.
- Good general computer skills and the ability to learn and use computer systems.
- Familiarity with Alcoa Fjarðaál's values, policies, and reliability strategy.
Alcoa Fjarðaál is a large and lively workplace that never sleeps. Together we create export value safely and responsibly, 24 hours a day, every day of the year. Alcoa Fjarðaál offers competitive wages and less duty than is generally known, and the staff's facilities are exemplary. Safety and health are always a priority in the workplace and opportunities for training, education, and professional development are plentiful.
Alcoa's values are Integrity, Excellence, Care, and Courage.
Following Alcoa Fjarðaál´s Equal Employment Opportunity Policy and the Icelandic Gender Equality Act No. 150/2020, individuals of all genders are encouraged to apply.
For more information, please contact Davíð Þór Sigurðarson, Potroom Manager, by email at david.sigurdarson@alcoa.com
You can apply for the job in Workday.
The application deadline is up to and including Sunday, December 8th.
Um starfsstöðina
Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði er eitt nútímalegasta og tæknivæddasta álver í heimi, og það er til fyrirmyndar hvað varðar umhverfisvernd. Álver Fjarðaáls er það stærsta á Íslandi með framleiðslugetu allt að 360.000 tonn af áli á ári. Starfsmenn okkar vinna saman að því að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu og fjölskylduvænt vinnuumhverfi með áherslu á náið samstarf við nærsamfélagið og hagsmunaaðila.
Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í.
Þetta er staður þar sem þú hefur vald til að gera þitt besta, vera þú sjálf/ur sjálf og upplifa sanna tilfinningu fyrir því að tilheyra. Slástu í hópinn og mótaðu starfsferil þinn með okkur!
Vinnan þín. Veröldin þín. Mótaðu þau til betri vegar.
Apply on company website